6. Gjaldskrá og greiðslufyrirkomulag
Nema annað sé ákveðað skal miða gjald og greiðslufyrirkomulag fyrir auglýsingar og þjónustu við gjaldskrá Nordic Holidays ehf.
7. Uppsagnarákvæði
Sé ekki um annað samið sérstaklega, er samningur auglýsingataka og Nordic Holidays ehf uppsegjanlegur með 15 daga fyrirvara af beggja hálfu, og skal þá miða við virka vinnudaga.
Sé samningi sagt upp, rift eða hann rennur út, gilda ákvæði 5. greinar eftir sem áður.
8. Fyrirvarar
Auglýsingataki samþykkir og gerir sér ljóst að:
a. Auglýsingar á vefum Nordic Holidays ehf, svo og þjónusta sem félagið veitir, hvort heldur er gegn greiðslu eða ekki, er algjörlega og eingöngu á ábyrgð auglýsingataka. Nordic Holidays ehf er í engum tilfellum skaðabótaskylt gagnvart auglýsingataka eða viðskiptavinum hans, á beinu eða óbeinu tjóni.
b. Auglýsingar og þjónusta sem Nordic Holidays ehf býður kann að taka breytingum á samningstímanum vegna aðgerða sem Nordic Holidays ehf framkvæmir í þeim tilgangi að bæta hag viðskiptavina sinna.
c. Nordic Holidays ehf getur ekki ábyrgst að auglýsingataki nái þeim árangri sem að er stefnt.
d. Auglýsingar og þjónusta kann að liggja niðri tímabundið, truflanir komi fram, eða að villur kunni að leynast í kerfi eða á vef Nordic Holidays ehf. Nordic Holidays ehf ber enga ábyrð á tjóni sem af því getur hlotist.
e. Ef efni tapast eða skemmist sem auglýsingataki hefur sett á vef Nordic Holidays ehf, eða sett hefur verið inn samkvæmt forskrift auglýsingataka, er Nordic Holidays ehf í engum tilfellum skaðabótaskylt.
f. Ef hugsanleg viðskipti tapast eða eru seld á röngu verði vegna truflana, galla eða villna á vef Nordic Holidays ehf, eða þeirrar þjónustu sem félagið veitir, er Nordic Holidays ehf í engum tilfellum skaðabótaskylt gagnvart auglýsingataka eða viðskiptavinum hans.
9. Varnarþing
Rísi mál af samningi auglýsingataka og Nordic Holidays ehf skal það rekið fyrir héraðsdómi Reykjavíkur.

<<< Til baka

Nordic Holidays ehf | kt 590110-1080 | Sími +354 445 8081 |